laugardagur, júní 26, 2004

Fleiri myndir af litla
Jæja, litli er allur að koma til, bólgan að hverfa en myndaalbúmið stækkar og stækkar :) setti inn fleir nýjar myndir hérna



fimmtudagur, júní 24, 2004

Íslenski draumurinn!!

 Ok, kannast einhver við þetta handrit? Ungur óþekktur athafnamaður fær hugmynd, framkvæmir hana og allt "smellur" hjá honum, lífið breytist hjá honum, hann kaupir sér jeppa, verður flottur í tauinu og lætur mikið á sér bera í íslensku celeb lífi, upp kemst um athæfið, hann missir allt og er að lokum með allt niðrum sig og er dæmdur í fangelsi.
Já mikið rétt hjá ykkur, þetta svona í grófum dráttum það sem kvikmyndin íslenski draumurinn er um, en þetta minnir mann óneytanlega á mál sem nú var var verið að dæma í, kannski þeir hafi stuðst við þetta handrit sem leiðara í sínu lífi? híhí :)

miðvikudagur, júní 23, 2004

Litli


Jæja, ætlaði svona að eins að láta vita af okkur en allt gengur voðalega vel. Ég og ása fórum upp á landspítalann kl 14 á sunnudaginn en hún hafði misst vatnið kl 8 um morguninn og var eftir hádegi eitthvað byrjuð að fá hríðir. Við vorum þar í frekar góðu yfirlæti þótt reyndar hún hafi ekki verið par ánægð með matinn en auðvitað reddaði maður því og skaust á subway og náði í 2 báta en hólí mólí, ég veit ekki hvað ég gerði greyði stelpunni á subway því sterkari mat hef ég varla smakkað, þetta var svo sterkt að ég var farinn að fá hríðir líka...eða svona næstum því en skellti bátnum í mig og svolgraði með þessu svona c.a 70 lítra af vatni, subway verður ekki beint fyrir valinu næst þegar manni hungrar á svipstundu, thats for sure, en annars þá fór ása að finna verulega fyrir því um kl 20 og kl 21 var hún komin á fæðingarstofuna og allt komið á fullt, þótt sá stutti hafi nú legið mikið á að fara að koma í heiminn(sett á hana 14.júlí) þá lét hann nú "aðeins" hafa fyrir sér en hann séri víst höfðinu eitthvað aðeins vitlaust þarna inni og því voru þetta nú engin smá átök þarna og um kl 01:00 þá var ákveðið að skella á hann sogklukku (eins og kanski sést :) og honum hjálpað síðustu sentimetrana og kom hann út 01:10 og var 14 merkur og 49,5 cm, en maður var mjög mjög glaður að sjá hann og að allt væri í lagi og svoleiðis, var samt mjög fyndið að sjá hann svona vel pattaralegann í framan en það er víst útaf þessu með að snúa höfðinu vitlaust þá rann þetta allt framan á andlitið á honum í staðinn fyrir hnakkann, en hann er ótrúlega fljótur að braggast og var nánast orðinn óþekkjanlegur á 2 degi miðað við fyrstu klukkutímana eftir fæðingu, annars
bætti ég inn nokkrum myndum og 2 video hérna. kveðjur í bili

þriðjudagur, júní 22, 2004

Jæja,sá litli þurfti að flýta sér í heiminn og kom kl 01:10 21.júní þurfti reyndar aðeins að hjálpa honum síðustu sentimetrana og fékk þetta flotta sogklukkufar á ennið en það hvefur nú í vikunni :), annars heilsast öllum vel og ég mun svo reyna að setja fleiri myndir og fréttir hérna inn næst þegar ég hef tíma :)



























































föstudagur, júní 11, 2004

ahahahaha, ég gat ekki annað en sett þetta inn, mér fannst þetta bara svo ógeðslega fyndin mynd, einhver sem er ekki alveg að nenna að taka á því á æfingunum :)

Frakkland calling

 Jæja, ótrúlega óspennandi vinnuviku að ljúka, sem betur fer, en núna tekur við eintóm gleði næstu daga og vikur (ef allt fer að óskum :), en Starsailor tónleikarnir í kvöld, veit að það verður bara snilld, grill og leikhúsferð á morgun og svo Frakkland á mánudaginn, újé, skroppið til Nice og Cannes og skellt sér í bátsferð niður frönsku rivíeruna, újé, það verður bara stemmari. Svo má nú ekki gleyma EM sem byrjar á laugardaginn, en fyrir þau ykkar sem ekki fylgjast með boltanum, then i feel sorry for you :) Jæja, hef ekkert að segja annað en góða skemmtun á helginni.

P.s Hérna náðust nokkrar myndir af stelpum að leika sér í nauthólmsvíkinni :)

miðvikudagur, júní 09, 2004

Ísland: Lýst eftir manni

 Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Ólafi Ragnari Grímssyni. Ólafur sem er 61 árs, er grannvaxinn, 188 cm og með stutt, ljóst og vel sveipað hár. Hann er með stór kassalaga gleraugu og gæti verið í jakkafötum merkt Bónus. Ólafur sást síðast 2.júní á blaðamannafundi á bessastöðum.

Þeir sem gætu gefið upplýsingar um ferðir hans síðan 2. júní sl. eru beðnir að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 569-9020 eða 569-9012.

Boltinn rúlar, újé

 Jæja, ekki allir í stuði? Finnst þessi vika aðeins of lengi að drattast áfram. Skellti mér á ÍBV - FH í vikunni og maður er nú maður nokkuð ánægður með þetta ÍBV lið, vel spilandi lið en er búið að vera ótrúlega óheppið með úrslitin framanaf móti og kannski algjör óþarfi að andstæðingar þeirri fái alltaf forgjöf :) allavega virðumst við eiga erfitt með að halda öllum inná vellinum í 90 mín. Svo EM að byrja um helgina, ohhh, það er bara snilld, fótbolti alla daga, verður ekki betra en það :)

föstudagur, júní 04, 2004

Brandari

 Vitiði afhverju dvergar spila ekki fótbolta á grasi?

Svar: Því þá kitlar svo í punginn :)

Verð að spyrja frank að þessu við tækifæri hvort þetta sé rétt :)

England - Ísland

 Ohhh, þá er langþráður leikur milli íslands og englands loksins að verða að veruleika, get ekki beðið eftir þessu, nú heimtar maður frábært veður á morgun, kaldur á sólpallinum, nokkrir kaldir yfir leiknum, djamm í bænum, heim að horfa á Oscar De La Hoya og Bernard Hopkins, ekki leiðinlegt plan það :)

Fjölmiðlafrumvarpið
Stutt og laggott
Langt og gott
Langt og ennþá betra

fimmtudagur, júní 03, 2004

Starsailor

 Djöfull er maður að fíla þetta tónleika æði sem er hérna, Korn búið, Starsailor næst, svo Metallica og síðan 50Cent, ekki slæmt það. Finnst samt skrýtið að það sé ekki orðið uppselt á Starsailor þar sem tónleikarnir eru á Nasa, þvílík snilldargrúppa þar á ferðinni og það verður pottþétt mikið fun þar.

Á helginni

 Djöfull var gaman á helginni, fyrsta edrú helgin í langann tíma sem var virkilega mikið fun af, skellti mér á Korn á sunnudaginn og jesús jósúa, þvílík og önnur eins snilld, hafði nánast aldrei hlustað á þá og ákváðum bara að skella okkur og þvílík gargandi snilld, án ef langbesta tónleikaband sem komið hefur á klakann, það get ég vottað. En svo er nú ekki slæm helgi framundan, sjómannahelgin í öllu sínu veldi, er svona að velta því fyrir mér hvort maður eigi að skjótast til eyja og taka á því þar, aldrei klikkað þessi helgi þar á bænum og ekki verra að stuðmenn séu að spila, en svo eru nú reyndar góðir menn á leiðinni í bæinn núna, þannig að það er úr vöndu að ráða :)

Þessa síðu borgar sig nú að kíkja inná annað slagið :)


Jæja þá stendur óli grís loksins undir nafni :)

Chelskí

 Hvað er málið með þetta chelsea lið, ætla núna að selja í kringum 20 leikmenn og kaupa einhvern slatta.....AFTUR, þetta kerfi á aldrei eftir að ganga upp hjá þeim, never ever

miðvikudagur, júní 02, 2004

Forsetinn okkar er drulluskítur

 Jæja, þá erum við bara komin með "nýtt" stjórnskipulag, nú verður greinilegt að forsetinn á ávallt eftir að leggja sitt mat í málum alþingis(þótt hann hafi nú gert það hingað til með undskrift laga),en þetta er mjög dapurlegt, að þessi bónus-dramadrottning skuli hafa gert þetta, og vísar málinu til þjóðaratkvæðargreiðslu, máli sem fólk þarf að mynda sér skoðun á í gegnum fjölmiðla og hvernig eiga þá fjölmiðlar norðuljósa að greina frá þessu, það verður aldrei óhlutdrægt og því skil ég ekki hvernig þjóðin á að geta kosið um þetta. Og hvernig verður þetta núna, á bónusfylkingin í samkrulli við Norðurljósabatteríið ekki alltaf eftir að búa til óróa í þjóðfélaginu í hverju einasta stóra máli og reyna að mynda skoðun þjóðfélagsins í þágu sína, þetta er ljóta ruglið og ég held að aldrei áður hafi pólitíkin komist niður á jafn lágt plan. Og það er nokkuð ljóst að óli skítur fær ekki atkvæðið mitt í næstu forsetakosningum....djöfull maður er brjálaður yfir þessu helvítis rugli